Creditinfo hefur hlotið jafnlaunavottun

Creditinfo Lánstraust hf. hefur hlotið Jafnlaunavottun frá vottunarstofnuninni BSI. Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.

Creditinfo Lánstraust hf. hefur hlotið Jafnlaunavottun frá vottunarstofnuninni BSI. Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. 

Jafnréttisáætlun Creditinfo var lögð fram í september árið 2022 samkvæmt lögum um jafnan rétt og jafna stöðu kynjanna nr. 150/2020, lögum nr. 86/2018 um jafna meðferð á vinnumarkaði og annarra laga og reglna er snúa að jafnrétti og gildir fyrir alla starfsmenn Creditinfo. Áætlunin kveður á um markmið og aðgerðir til ad tryggja starfsfólki fyrirtækisins þau réttindi sem kveðið er á um í 6. - 14. gr. laganna. 

Jafnlaunavottun BSI er staðfesting á því að jafnréttisáætlun Creditinfo standist kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012 og veitir Creditinfo heimild til að nota jafnlaunamerkið.