Á hverju ári mælir Creditinfo heilbrigði íslenskra fyrirtækja þegar kemur að lykiltölum í rekstri. Að jafnaði standast aðeins 2% fyrirtækja þær ströngu kröfur sem gerðar eru til Framúrskarandi fyrirtækja sem þýðir að þau eru komin í úrvalshóp og líklegri til að ná árangri og standast álag en önnur. Við erum stolt af Framúrskarandi fyrirtækjum 2022 og við vitum að árangur þeirra er mikilvægur fyrir þau sjálf og hagkerfið í heild. Traust fyrirtæki eru grunnurinn að hraustu samfélagi.
Markhópalisti Framúrskarandi fyrirtækja er listi yfir öll Framúrskarandi fyrirtæki ársins með fjárhagsupplýsingum úr ársreikningum þriggja síðastliðinna ára. Hann er afhentur sem Excel skjal og inniheldur