Creditinfo
Fjártækni
Fasteignir
Tilkynningar

Creditinfo festir kaup á fasteignaverðmati Two Birds

8.5.2024

Creditinfo og Two Birds, móðurfélag Aurbjargar, hafa undirritað samning um kaup Creditinfo á fasteignaverðmati Two Birds. Eftir kaupin verður verðmatið hluti af þjónustuframboði fyrir áskrifendur Creditinfo auk þess sem að áskrifendur Aurbjargar munu áfram geta nýtt það við verðmat fasteigna.  

Fasteignaverðmat Two Birds birtir áætlað markaðsvirði fasteignar, byggt á raungögnum og markaðsgögnum sem eru túlkuð með notkun gervigreindar. Verðmatið er nýtt daglega af fyrirtækjum og einstaklingum til að taka betri ákvarðanir í fasteignaviðskiptum. Með kaupum Creditinfo á fasteignaverðmatinu gefst áskrifendum Creditinfo kostur á að hagnýta verðmatið á þjónustuvef Creditinfo auk ítarlegra greininga á fasteignamarkaði og fasteignasöfnum fyrirtækja.  

Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi:  

„Með kaupunum á fasteignaverðmati Two Birds gefst okkur kostur á að styðja enn betur við upplýsta ákvarðanatöku viðskiptavina Creditinfo. Þarfir fyrirtækja fyrir fjölbreyttar lausnir og áreiðanleg gögn aukast sífellt og er það mikilvægt fyrir okkur hjá Creditinfo að geta mætt þeim þörfum og gott betur.“ 

Ásdís Arna Gottskálksdóttir, framkvæmdastjóri Two Birds: 

„Með sölu fasteignaverðmatsins til Creditinfo gefur það Two Birds möguleika á að einfalda reksturinn og leggja áherslu á að styrkja Aurbjörgu enn frekar í fjármálafræðslu og þjónustu kringum fjármál einstaklinga og heimila. Aurbjörg mun áfram birta uppfærð verðmöt skráðra eigna mánaðarlega og munu viðskiptavinir geta flett upp verðmati eigna eins og áður.  Aurbjörg hefur þá sérstöðu að upplýsa neytendur um verð á margvíslegri þjónustu og veita viðskiptavinum upplýsingar til að taka upplýstar ákvarðanir í persónulegum fjármálum.“ 

Um Creditinfo  

Creditinfo var stofnað í Reykjavík árið 1997. Fyrirtækið er leiðandi upplýsinga- og þjónustufyrirtæki á heimsvísu, sem sérhæfir sig í miðlun fjárhags- og viðskiptaupplýsinga og ráðgjöf tengdri áhættumati og áhættustýringu fyrirtækja.

Um Two Birds 

Fjártæknifyrirtækið Two Birds er móðurfélag Aurbjargar sem heldur úti fjártæknivefnum aurbjorg.is. Aurbjorg.is hjálpar neytendum með fjármál heimilisins, meðal annars með samanburði á ýmsum þjónustum og með því að veita betri yfirsýn yfir fjárhagsstöðu hverju sinni.  

Hafðu samband ef þú vilt frekari upplýsingar um fasteignaverðmat eða aðrar vörur Creditinfo.

Deila efni:

Fréttabréf Creditinfo

Fáðu nýjustu fréttir af lausnum og þjónustu Creditinfo í tölvupósti
Þú hefur verið skráður í fréttabréf hjá Creditinfo
Oops! Something went wrong while submitting the form.