Þekktu viðskiptavininn
Betri ákvarðanir
Gagnalausnir
Markaðslausnir
Lánshæfismatið byggir á stærsta safni viðskiptaupplýsinga hérlendis og metur líkur á vanskilum tólf mánuði fram í tímann.
Áskrifendur geta nálgast upplýsingarnar á þjónustuvefnum en einnig er í boði að kaupa lánshæfismat fyrirtækja í vefverslun okkar með kreditkorti. Sláðu inn nafn fyrirtækis í reitinn hér fyrir neðan og sjáðu hvaða gögn við eigum um fyrirtækið.
Með því að kanna lánshæfismat þeirra aðila sem þú átt í viðskiptum við fæst góð vísbending um getu þeirra til að standa við skuldbindingar sínar og lágmarkar þar með áhættu við ákvarðanatöku
Notkun lánshæfismatsins tryggir að ekki er lagt huglægt mat við ákvarðanartöku um viðskipti heldur byggt á hlutlægum upplýsingum frá óháðum aðila. Jafnframt auðveldar það samskipti við viðskiptamenn því ákvarðanataka er rökstudd með tölulegum gögnum fremur en persónulegu mati.
Út frá lánshæfismati eru fyrirtæki flokkuð niður frá eitt til tíu. Fyrirtæki í flokki eitt eru líklegust til að standa við skuldbindingar en tíu eru ólíklegust.
Lánshæfi einstaklinga er metið á kvarðanum A1-E3, þar sem A1 er besta mögulega einkunn og E3 sú lakasta.
Áskrifendur að þjónustuvef Creditinfo hafa aðgang að ítarlegum fyrirtækjaupplýsingum og lánshæfismati erlendra fyrirtækja. Lánshæfisskýrslurnar reynast vel við að meta og draga úr áhættu í viðskiptum milli landa.
Sýnishorn: Erlend skýrsla VERÐ 6.300 KR.
Creditinfo er einnig umboðsaðili fyrir Dun & Bradstreet Inc og fleiri erlendra aðila á sviði fjárhags- og markaðsupplýsinga, sem hægt er að panta sérstaklega með því að hafa samband.
„Lánshæfismatið styður við ákvörðun okkar um reikningsviðskipti og okkur líður betur með þær. Lánshæfismatið hjálpar manni að taka góðar ákvarðanir fyrr.“