Ráðgjöf

Við veitum sérhæfða ráðgjöf á sviði áhættustýringar, greiningar og sjálfbærni og styðjum þannig fyrirtæki í að taka upplýstar ákvarðanir sem skapa aukið virði.

Áhættustýring og greiningar

Helstu ráðgjafaverkefni fyrir viðskiptavini:

  • Greining viðskiptareglna: Er uppsetning reglna eins og best verður á kosið m.t.t. virðissköpunar og áhættu
  • Uppsetning á viðskiptareglum: Hverjum á að lána og hversu mikið?
  • Hafnanagreiningar: Söguleg greining á ákvörðunum, þ.e. er verið að hafna réttum aðilum eða ætti að hleypa fleirum í gegn (auka viðskipti) eða hafna fleirum (minnka áhættu)
  • Vænt tap (IFRS9): Aðstoð við notkun lánshæfismats Creditinfo til að standast uppgjörsstaðla, svo sem IFRS9
  • Nýting lánshæfismats eða annarra gagna Creditinfo: Aðstoð við að nýta gögn og lausnir Creditinfo á sem skilvirkastan hátt.
  • Uppsetning áhættustefnu
  • Greining á lánasöfnum

Dr. Gunnar Gunnarsson,
Forstöðumaður, Greining og ráðgjöf

Gunnar er með doktorspróf í stærðfræði frá Kaliforníuháskóla í Santa Barbara (UCSB), M.A. gráðu í stærðfræði frá sama skóla og B.Sc. gráðu í stærðfræði frá Háskóla Íslands. Gunnar hefur starfað um árabil á sviði áhættustýringar, m.a. innan Íslandsbanka í rúm 6 ár og sem meðlimur í áhættunefnd stjórnar Íbúðalánasjóðs og Teya. Á árunum 2012 - 2014 var hann deildarstjóri innan áhættustýringar hjá Íslandsbanka, vann svo sjálfstætt sem ráðgjafi í áhættustýringu til 2016 en hefur síðan stýrt Greiningu og ráðgjöf hjá Creditinfo og ber þar m.a. ábyrgð á lánshæfismati einstaklinga og fyrirtækja sem og öðrum greiningum félagsins.

Sjálfbærni

Helstu ráðgjafaverkefni fyrir viðskiptavini:

  • Fjármögnuð losun gróðurhúsalofttegunda frá eignasöfnum (PCAF)
  • Kolefnisspor fyrirtækja
  • Uppbygging sjálfbærnistefnu
  • Sjálfbærniáhættumat eignasafna

Dr. Reynir Smári Atlason,
Forstöðumaður, Viðskiptaþróun og sjálfbærni

Reynir lauk doktorsprófi í umhverfis- og auðlindafræði frá Háskóla Íslands árið 2015, M.Sc. gráðu í Umhverfis- og auðlindafræði frá sama skóla og BA próf í iðnhönnun frá Curtin University of Technology í Perth Vestur Ástralíu. Hann starfaði sem lektor við verkfræðideild Háskólans í Suður-Danmörku (SDU) frá 2015 til 2019. Á undanförnum árum hefur hann birt fjölda ritrýndra greina og bókakafla á sviði umhverfisvísinda og sjálfbærni. Reynir leiðir sjálfbærnivegferð Creditinfo group á heimsvísu.

Algengar spurningar

No items found.

Notkunartilfelli

Umsagnir viðskiptavina

”Creditinfo veitti okkur metnaðarfulla og vandvirka ráðgjöf sem skilaði raunverulegu virði fyrir fyrirtækið. Framúrskarandi þjónusta og skýr samskipti einkenndu ferlið frá upphafi til enda.”

Þráinn Halldórsson
Sérfræðingur í sjálfbærni

Fréttabréf Creditinfo

Fáðu nýjustu fréttir af lausnum og þjónustu Creditinfo í tölvupósti
Þú hefur verið skráður í fréttabréf hjá Creditinfo
Oops! Something went wrong while submitting the form.