Þekktu viðskiptavininn
Betri ákvarðanir
Gagnalausnir
Markaðslausnir
Fjölmiðlavaktin hefur vaktað umfjöllun í útvarpi, sjónvarpi, blöðum og netmiðlum um árabil og er leiðandi þjónusta á sínu sviði á Íslandi. Fjölbreyttar lausnir Creditinfo á sviði fjölmiðlaupplýsinga nýtast bæði við stýringu orðspors og til að taka upplýstar ákvarðanir í viðskiptum.
Á hverjum degi eru fluttar fjöldinn allur af fréttum á Íslandi í fjölmörgum fjölmiðlum. Ef þú missir af mikilvægri umfjöllun um þitt fyrirtæki í getur það reynst þér dýrkeypt. Sein og óundirbúin viðbrögð við fjölmiðlaumfjöllun eru ófagleg og geta skaðað orðspor fyrirtækja til langs tíma. Með Fjölmiðlavakt Creditinfo er hægt að fylgjast með fjölmiðlaumfjöllun um hvaða fyrirtæki eða málefni sem er. Við sendum þér tölvupóst hvenær sem umfjöllun birtist í útvarpi, sjónvarpi, blöðum, netmiðlum og samfélagsmiðlum. Þannig tryggir þú góða yfirsýn yfir umfjöllun um málefnin sem þig varðar.
Ef þitt fyrirtæki kemur oft fyrir í fjölmiðlum er flókið að halda utan um þær fréttir sem skipta þig máli. Áskrifendur að Fjölmiðlavaktinni geta ekki einungis fengið tilkynningar í tölvupósti þegar fréttir um þeirra fyrirtæki birtast í fjölmiðlum heldur geta þeir einnig greint hvort fréttirnar séu mikilvægar fyrir þeirra starfsemi. Með Fréttaskorinu gefst fyrirtækjum færi á að sigta fréttir út eftir mikilvægi þeirra og greint með skjótum hætti þær upplýsingar sem skipta máli.
Það getur reynst tímafrekt og flókið að sjá með skýrum hætti hvort fjallað sé um þitt fyrirtæki með jákvæðum eða neikvæðum hætti í fjölmiðlum. Með innihaldsgreiningu er hægt að fá fréttir greindar eftir því hvort þær hafi neikvæð eða jákvæð áhrif á orðspor þíns fyrirtækis. Áskrifendur í innihaldsgreiningu geta fylgst með því með myndrænum hætti hvernig orðspor fyrirtækis er í fjölmiðlum á þjónustuvef Fjölmiðlavaktarinnar.
Áskrifendur með fréttaskor og/eða innihaldsgreiningu fá sendan tölvupóst eins og þann sem er hér á myndinni þar sem tilgreint er hvaða mikilvægi umfjöllunin hafði og áhrif hennar á orðspor viðkomandi aðila. Þessar upplýsingar má einnig nálgast á þjónustuvef Fjölmiðlavaktarinnar.
„Ein frétt getur haft mikil tilfinningaleg áhrif á fólk en gefur ekki endilega rétta mynd af því hvernig fjölmiðlaumfjöllun er almennt. Þess vegna er gott að hafa Fjölmiðlavaktina sem hlutlausan mælikvarða yfir hvernig fjölmiðlaumfjöllunin er í raun og veru.“