Þekktu viðskiptavininn
Betri ákvarðanir
Gagnalausnir
Markaðslausnir
Tilkynningarskyldir aðilar geta nálgast upplýsingar um einstaklinga sem eru í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla auk upplýsinga úr alþjóðlegum þvingunarlistum á þjónustuvef Creditinfo og þannig uppfyllt skilyrði laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Tilkynningarskyldum aðilum sem hafa áhuga á að fá aðgang að PEP-grunni Creditinfo og alþjóðlegum gagnagrunni um stjórnmálaleg tengsl og þvingunarlista geta haft samband til þess að fá aðgang að þessum upplýsingum.
Tilkynningarskyldir aðilar skv. peningaþvættislögum geta flett upp í grunninum yfir stjórmálaleg tengsl. Þetta eru t.d. fjármálafyrirtæki, endurskoðendur, lögmenn, fasteignasalar og aðrir lögaðilar sem skylt er lögum samkvæmt að afla upplýsinganna.
Tilkynningarskyldum aðilum ber að kanna hvort viðskiptavinir þeirra séu í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla samkvæmt lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, lög, nr. 140 frá árinu 2018. Einstaklingar eru taldir hafa stjórnmálaleg tengsl ef þeir eru eða hafa verið háttsettir í opinberri þjónustu. Til dæmis alþingismenn, sendiherrar og dómarar. Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands viðheldur lista yfir starfsheiti sem teljast háttsett opinber störf . Tilkynningarskyldum aðilum ber einnig að kanna nánustu fjölskyldu og nána samstarfsmenn þessara aðila.
Allir einstaklingar sem skráðir eru í grunninn fá senda tilkynningu um skráninguna. Á vefnum Mitt Creditinfo má sjá þær upplýsingar sem eru skráðar, uppfæra þær og bæta við tengslum við fjölskyldu og nána samstarfsmenn ef þau vantar.
Endanlegir eigendur hafa að geyma upplýsingar um þann eða þá aðila sem raunverulega eiga tiltekið fyrirtæki og hversu stóran hluta hver og einn eigandi á.
Tengsl stjórnenda er ítarleg samantekt á upplýsingum um tengsl stjórnenda og fyrirtækja. Fram koma meðal annars upplýsingar um eigendur og hluthafa, hlutafélagaþátttöku stjórnarformanns og framkvæmdastjóra og dóttur- og hlutdeildarfélög, ásamt ársniðurstöðum tengdra félaga.
Með Áreiðanleikamati Creditinfo getur þú á einum stað nálgast allar þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að framkvæma áreiðanleikakönnun (KYC, know your customer) á viðskiptavinum þínum.
Creditinfo býður upp á tengingu við alþjóðlega gagnagrunna svo að tilkynningarskyldir aðilar geti kannað hvort viðskiptamenn þeirra séu á alþjóðlegum þvingunarlistum eða hvort erlendir viðskiptamenn séu í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla. Gögn um erlenda aðila og alþjóðlega Sanctions og Watchlist eru sótt frá alþjóðlega fyrirtækinu LexisNexis sem hefur að geyma einn stærsta og áreiðanlegasta gagnagrunn sinnar tegundar á heimsvísu yfir slíkar upplýsingar.