Fréttir
Fréttir af Creditinfo
KYC
Þekktu viðskiptavininn

Einfaldari verðlagning Áreiðanleikamats

1.9.2026

Þann 1. október nk. tekur gildi breytt fyrirkomulag á gjaldtöku fyrir Áreiðanleikamat Creditinfo.

Innifalið í hverju framkvæmdu Áreiðanleikamati verður spurningalisti með rafrænum skilríkjum, uppfletting á ríkisfangi, stjórnmálalegum tengslum og alþjóðlegum listum.

Nýtt verð fyrir Áreiðanleikamat einstaklinga verður 790 kr. og 1.490 kr. fyrir Áreiðanleikamat lögaðila.

Inni í Áreiðanleikamatinu er svo mögulegt að sækja viðbótarupplýsingar eftir þörfum. Fyrir bæði einstaklinga og lögaðila er hægt að nálgast upplýsingar um félagaþátttöku, dóma og AML-fjölmiðlaumfjöllun, þegar slíkar upplýsingar liggja fyrir. Fyrir lögaðila er að auki hægt að nálgast samanburðarskýrslu úr hlutafélagaskrá, skönnuð skjöl og upplýsingar um hluthafa og endanlega eigendur.

Gjald fyrir uppflettingu viðbótarupplýsinga fer samkvæmt gildandi verðskrá Creditinfo hverju sinni.

Deila efni:

Fréttabréf Creditinfo

Fáðu nýjustu fréttir af lausnum og þjónustu Creditinfo í tölvupósti
Þú hefur verið skráður í fréttabréf hjá Creditinfo
Oops! Something went wrong while submitting the form.