.jpg)
Creditinfo hlaut á dögunum viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026, hreyfiaflsverkefnis á vegum FKA sem hefur það að markmiði að stuðla að jafnari kynjahlutföllum í stjórnunarstöðum íslenskra fyrirtækja og stofnana. Creditinfo er jafnframt stoltur bakhjarl verkefnisins.
Alls hlutu 163 fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög viðurkenninguna í ár, sem er fjölgun um 27% milli ára, en afhendingin fór fram 14. október síðastliðinn.
Yfirskrift viðurkenningarhátíðarinnar í ár var „Losum um hnútinn“. Hún er jafnframt yfirskrift herferðar Jafnvægisvogarinnar sem hvetur stjórnendur, stjórnir og eigendur til að taka virka afstöðu með jafnrétti og fylgja henni eftir með ákvörðunum.
Jón Sigurður Þórarinsson, gagnagreinir, og Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri, tóku við viðurkenningunni fyrir hönd Creditinfo.
.jpg)