Þekktu viðskiptavininn
Betri ákvarðanir
Gagnalausnir
Markaðslausnir
Áreiðanleikamat Creditinfo gerir tilkynningarskyldum aðilum kleift að kanna áreiðanleika viðskiptamanna sinna með ítarlegum hætti, senda á þá áreiðanleikakönnun sem þeir svara með rafrænni auðkenningu, kanna hvort þeir séu í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla eða á alþjóðlegum þvingunarlistum.
Með Áreiðanleikamati Creditinfo fær tilkynningarskyldur aðili góða yfirsýn yfir allt það helsta sem honum ber að kanna við mat á áreiðanleika viðskiptamanna sinna skv. lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018 og skv. lögum um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023.
Í Áreiðanleikamati Creditinfo geta tilkynningarskyldir aðilar:
Slá inn kennitölu einstaklings / lögaðila
Fyrsta skrefið við framkvæmd áreiðanleikamats er að slá inn nafn eða kennitölu viðskiptavinar og smella á „Hefja áreiðanleikamat“.
Yfirlit Áreiðanleikamats
Þá er hægt að fá yfirlit á einum stað yfir viðskiptavininn. Ef um lögaðila er að ræða er hægt að sjá upplýsingar um stjórn, framkvæmdastjórn og raunverulega eigendur. Hægt er að kanna þjóðerni allra þessara einstaklinga ásamt stjórnmálalegum tengslum þeirra og stöðu þeirra gagnvart alþjóðlegum þvingunarlistum. Ef um einstakling er að ræða er hægt að sjá ríkisfang þeirra, stjórnmálaleg tengsl og stöðu gagnvart alþjóðlegum þvingunarlistum. Einnig er hægt að sækja félagaþátttöku þeirra.
Senda Áreiðanleikakönnun
Hægt er að senda áreiðanleikakönnun á einstakling með því að fylla út netfang og símanúmer viðkomandi. Sá hinn sami sannar á sér deili með rafrænum skilríkjum og fær sendan til sín spurningalista um uppruna fjármuna, tilgang viðskipta, tengsl við áhættusöm eða ósamvinnuþýð ríki og stjórnmálaleg tengsl.
Aðilaspjald Áreiðanleikamats
Tilkynningarskyldir aðilar fá greinargóða yfirsýn yfir viðskiptamanninn hvernig orðspor viðkomandi er og hvort eignarhaldið sé einfalt eða flókið. Ef áreiðanleikakönnun hefur verið send á viðskiptamann, þá birtast svörin úr henni, ásamt tímastimpli rafrænna skilríkja inni í Áreiðanleikamatinu þegar henni hefur verið svarað. Ef svörin gefa til kynna að kanna þurfi aðilann nánar, þá er því flaggað og unnt er að skoða svörin nánar undir „Yfirlit“. Þá er einnig hægt að flokka viðskiptavini eftir innra áhættumati, kanna stöðu áreiðanleikakannana o.fl.
Creditinfo hefur að geyma stærsta gagnagrunn viðskiptaupplýsinga á Íslandi, áreiðanlegan gagnagrunn yfir stjórnmálaleg tengsl einstaklinga (PEP) og tengingu við alþjóðlega gagnagrunna LexisNexis.
Nauðsynlegar upplýsingar um raunverulega eigendur, stjórnmálaleg tengsl o.fl. eru aðgengilegar í einu þægilegu viðmóti sem auðvelt er að sækja í eftir þörfum.
„Áreiðanleikamat Creditinfo hefur einfaldað okkar verklag við framkvæmd áhættumats á okkar viðskiptavinum og aukið skilvirkni til muna.“
„Eftir að við fórum að nota Áreiðanleikaskýrslu Creditinfo þurfum við að ónáða viðskiptavini mun minna vegna þess að nauðsynlegar upplýsingar eru þar á einum stað. Við náum þá að minnka hópinn af viðskiptavinum sem við þurfum að kanna nánar og erum með uppfærðar upplýsingar um flesta viðskiptavini okkar hverju sinni.“