Það er stefna Creditinfo að tryggja persónuvernd og rétta meðferð og vinnslu persónuupplýsinga. Það er gert með því að fylgja markmiðum, lögum, reglum og starfsleyfi félagsins sem gefið er út af Persónuvernd.
Creditinfo gefur út reglur um meðferð og vinnslu persónuupplýsinga hjá félaginu sem eru öllum aðgengilegar á heimasíðu félagsins.
Creditinfo endurskoðar þessa stefnu eins og tilefni er til en að lágmarki á tveggja ára fresti.
Reykjavík, 18. janúar 2024
Hrefna Sigfinnsdóttir
Framkvæmdastjóri Creditinfo