No items found.

35% fyrirtækja hafa skilað ársreikningi

10.8.2020

12.662 ársreikningum hefur verið skilað fyrir reikningsárið 2019 en það jafngildir rúmlega 35% af öllum ársreikningum sem var skilað fyrir reikningsárið 2018. Tekjur þessara félaga jafngilda um 53% af heildartekjum þeirra fyrirtækja sem skiluðu ársreikningi árið á undan.

Ársreikningaskil fyrir reikningsárið 2019 fylgja sambærilegum takti og síðustu ár en frá árinu 2017 hefur fyrirtækjum fjölgað sem skilar ársreikningi á réttum tíma. Nánar um ársreikningaskil fyrri ára.

Samkvæmt lögum um ársreikninga ber félögum að skila ársreikningi eigi síðar en átta mánuðum eftir lok reikningsárs. Þar sem flest félög hafa uppgjörstímabil frá janúar til desember er skilafresturinn í flestum tilvikum 31. ágúst á hverju ári.

Meirihluti fyrirtækja sem skiluðu ársreikningi fyrir árið 2018 voru búin að skila ársreikningi í september á síðasta ári. Miðað við þann fjölda ársreikninga sem hefur verið skilað núna er útlit fyrir að hið sama muni gilda um ársreikningaskil fyrir rekstrarárið 2019.

Fjölbreyttar leiðir til að nálgast ársreikninga

Ein skilvirkasta leiðin til að meta rekstrarhæfi fyrirtækja fæst með því að greina ársreikninga þeirra. Hægt er að nálgast ársreikninga annað hvort með áskrift að þjónustuvef Creditinfo eða í gegnum vefverslun. Hægt er að nálgast annað hvort skannað frumrit af ársreikningi frá RSK eða innslegið eintak af ársreikningnum. Með innslegnu eintaki er hægt að sækja upplýsingar úr ársreikningi á Excel-sniði til frekari greiningar.

Áskrifendur að Creditinfo geta gert gott betur og sótt skýrslu með upplýsingum úr ársreikningum fyrirtækja fimm ár aftur í tímann. Með þeim hætti er hægt að leggja greinargott mat á hvernig rekstur fyrirtækis hefur þróast í gegnum tímabilið og öðlast því dýpri sýn á rekstrarhæfi þess.

Með áskrift að Creditinfo gefst þér einnig færi á að fylgjast með ársreikningaskilum fyrirtækja. Ef fyrirtæki er ekki enn búið að skila nýjasta ársreikningi getur þú einfaldlega skráð félagði í vakt og fengið tilkynningu í tölvupósti þegar ársreikningurinn er tilbúinn. Nánar um Fyrirtækjavakt Creditinfo.

Með aðgangi að stærsta safni viðskiptaupplýsinga á Íslandi tekur þú markvissari ákvarðanir í viðskiptum. Kynntu þér áskriftarleiðirnar sem standa til boða hjá Creditinfo.

Deila efni:

Fréttabréf Creditinfo

Fáðu nýjustu fréttir af lausnum og þjónustu Creditinfo í tölvupósti
Frábært! Þú ert núna skráð(ur) í fréttabréfið hjá Creditinfo
Úps, eitthvað fór úrskeiðis. Vinsamlegast reynið aftur með því að endurhlaða síðuna