No items found.

Breytingar á lykilfólki

23.2.2021

Vilt þú vita um breytingar á stjórnendum íslenskra fyrirtækja? Með hjálp Creditinfo getur þú fengið tilkynningar um allar helstu breytingar á framkvæmdastjórum, forstjórum, stjórnarformönnum og öðrum stjórnendum íslenskra fyrirtækja sem tilkynntar eru í fjölmiðlum í tölvupósti til þín.

Mannauðsstjórar, viðskiptastjórar og aðrir sem þurfa að halda utan um mannabreytingar eða viðskiptasambönd innan fyrirtækja hafa ríka þörf fyrir að vera upplýstir um breytingar á stjórnartaumum íslenskra fyrirtækja. Áskrift að Breytingum á lykilfólki hentar vel þeim sem vilja vera meðvitaðir um mannabreytingar í íslensku athafnalífi svo hægt sé að taka upplýstar ákvarðanir um þróun viðskiptasambanda.  

Áskrifendur að Breytingum á lykilfólki fá tilkynningar í tölvupósti í hvert skipti sem frétt birtist um stjórnendaskipti hjá íslenskum fyrirtækjum. Hægt er að opna netmiðlafréttir í vafra og sækja blaða- og ljósvakaefni sem pdf skjöl. Fjölmiðlavakt Creditinfo vaktar umfjöllun í öllum helstu netmiðlum og dagblöðum auk fréttatíma sjónvarps og útvarps hjá RÚV/Rás1&2 og Stöð 2/Bylgjunni.

Skjáskot af pósti úr stjórnendavakt Creditinfo

Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar um Breytingar á lykilfólki.

Ekki hika við að hafa samband við okkur ef einhverjar spurningar um Fjölmiðlavaktina vakna. Smelltu hér til að óska eftir aðgangi að Fjölmiðlavaktinni. 

Deila efni:

Fréttabréf Creditinfo

Fáðu nýjustu fréttir af lausnum og þjónustu Creditinfo í tölvupósti
Frábært! Þú ert núna skráð(ur) í fréttabréfið hjá Creditinfo
Úps, eitthvað fór úrskeiðis. Vinsamlegast reynið aftur með því að endurhlaða síðuna