Framúrskarandi fyritæki

Héðinn hf. hlaut hvatningarverðlaun fyrir framúrskarandi nýsköpun 2023

26.10.2023

Héðinn hf. hlaut hvatningarverðlaun Creditinfo og Klak - Icelandic Startups fyrir framúrskarandi nýsköpun árið 2023. Héðinn hf er leiðandi fyrirtæki í málmiðnaði og véltækni og sinnir fjölbreyttri þjónustu við sjávarútveg, stóriðjufyrirtæki og orkuframleiðendur innanlands og utan. Félagið var stofnað árið 1922 og fagnaði því 100 ára afmæli í fyrra.

https://vimeo.com/878218586?share=copy

Í umsögn dómnefndar kemur fram að Héðinn hf. hafi frá upphafi stundað nýsköpun af krafti. „Sem dæmi má nefna að Héðinn reisti fyrstu íslensku síldarverksmiðjuna á Seyðisfirði árið 1936 og árið 1951 þróaði fyrirtækið og framleiddi fyrstu íslensku heimilisþvottavélina, Mjöll, í samvinnu við Rafha. Héðinn tók þátt í að þróa og smíða nýja og nútímalega sorpeyðingarstöð á Suðurnesjum sem var opnuð árið 2004.“ 

Dómnefndin minnist einnig á að Héðinn hefur þróað og smíðað próteinverksmiðju fyrir togara sem tryggir 100% nýtingu á fiskinum, og á tímabilinu 2017-2021 seldi Héðinn ýmsar útgáfur af próteinverksmiðjunni til sjö landa utan Íslands. Námu útflutningsverðmætin um sex milljörðum króna. 

Í umsögn dómnefndar kemur fram að Héðinn hf. er um þessar mundir í öflugri hugbúnaðarþróun fyrir sjávarútveginn með það að markmiði að útgerðir geti verið með allar upplýsingar um búnaðinn í verksmiðjunum og skipunum á einum stað og lágmarkað þörfina á óskipulögðum viðhaldsstoppum. 

Héðinn hefur aðstoðað mörg íslensk sprotafyrirtæki, t.d með því að taka þátt í hönnun, smíði og uppsetningu vélbúnaðar verksmiðju Vaxa Technologies og þátttöku í smíði lofthreinsistöðvar Carbfix við Hellisheiðarvirkjun. Nýverið ákvað Héðinn að styðja við íslenska frumkvöðla sem eru að stíga sín fyrstu skref í gegnum frumkvöðlakeppnina Gulleggið. Einnig hefur fyrirtækið boðið íslenskum frumkvöðlum aðstoð og aðstöðu fyrir gerð frumgerða.

Um hvatningarverðlaunin

Hvatningarverðlaunin eru veitt samhliða birtingu lista yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2023. Dómnefnd vann úr lista yfir Framúrskarandi fyrirtæki og sýndu fram á skýra stefnu í nýsköpun í sinni starfsemi. Verðlaunin eru unnin í samstarfi við Klak - Icelandic Startups. Í dómnefnd sátu Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Klak, Guðmundur Hafsteinsson, fjárfestir og stjórnarformaður Icelandair Group og Ásthildur Otharsdóttir, meðeigandi og fjárfestingastjóri hjá Frumtak Ventures.

Deila efni:

Fréttabréf Creditinfo

Fáðu nýjustu fréttir af lausnum og þjónustu Creditinfo í tölvupósti
Þú hefur verið skráður í fréttabréf hjá Creditinfo
Oops! Something went wrong while submitting the form.