No items found.

Leiðbeiningar fyrir þjónustuvef Creditinfo

2.10.2019

Creditinfo hefur að geyma stærsta safn viðskiptaupplýsinga á Íslandi. Með áskrift þinni getur þú aflað þér ítarlegra upplýsinga um íslensk og erlend fyrirtæki sem styðja við upplýsta ákvarðanatöku. Hægt er að fá m.a. upplýsingar um lánshæfi og vanskil aðila, eignarhald og tengsl félaga auk ársreikninga félaga.  

Viðskiptasafnið

Áskrifendur með aðgang að Viðskiptasafninu sjá stöðuna á sínu safni með tilliti til lánshæfis og vanskila um leið og þeir skrá sig inn á þjónustuvefinn.

Einnig eru aðgengilegar upplýsingar um nýjustu breytingar á vaktinni.

Með Viðskiptasafni Creditinfo gefst þér kostur á að vakta breytingar sem kunna að verða hjá samstarfsaðilum og viðskiptavinum til þess að lágmarka afskriftir. Viðskiptasafnið fylgir öllum nýjum áskriftarleiðum Creditinfo. Ef þú ert ekki með aðgang að Viðskiptasafninu hvetjum við þig til að hafa samband.

Breytingar á högum fyrirtækja

Á forsíðunni er einnig hægt að sjá nýjustu breytingar úr fyrirtækjaskrá, eignarhaldi og nýjum ársreikningum. Þá getur þú séð t.d. þegar fyrirtæki skila ársreikningi, breytingar í hlutafélagaskrá og eignarhaldi. Nánari upplýsingar um vöktun á högum fyrirtækja.  

Þar fyrir neðan er hægt að sjá upplýsingar um áður sótt gögn. Þetta yfirlit er gagnlegt ef þú vilt komast hjá því að stofna aftur til kostnaðar fyrir þau gögn sem þú sækir. 

Viðskiptaspjald

Þegar þú skráir þig inn á þjónustuvefinn getur þú slegið inn nafn fyrirtækis eða einstaklings í leitarglugga efst á síðunni.  

Þegar þú sækir upplýsingar um fyrirtæki sérð þú fyrst grunnupplýsingar um fyrirtækið. Þ.e. kennitala, aðsetur, starfsemi, rekstrarform og póstnúmer. Ef fyrirtækið telst til Framúrskarandi fyrirtækja er hægt að sjá vottun þess efnis.

Undir „Vöktun“ er annað hvort hægt að bæta fyrirtækinu við í Fyrirtækjavakt eða í Viðskiptasafnið. Þar fyrir neðan er hægt að sjá nýjustu breytingar sem orðið hafa á högum fyrirtækisins. Einnig er hægt að bæta fyrirtækjum við í vöktun

Hér fyrir neðan getur þú lesið um allar þær upplýsingar sem þú getur sótt:

Staðan 

Efst á spjaldinu er hægt að finna ítarleg gögn um fjárhagsstöðu fyrirtækisins með tilliti til lánshæfis og vanskila. Hægt er með auðveldum hætti að bæta völdu fyrirtæki við í vöktun, annað hvort með tilliti til lánshæfis og vanskila eða breytinga á högum fyrirtækisins.

Lánshæfismat 

Undir Lánshæfismati er hægt að sjá hvert lánshæfismat viðkomandi fyrirtækis er, hvernig það hefur þróast yfir síðustu 19 mánuði og hvernig það er í samanburði við önnur fyrirtæki í sömu atvinnugrein. Hægt er að sjá lykiltölur úr ársreikningum, fjöldi hluthafa, dóttur og hlutdeildarfélaga auk annarra ítarupplýsinga um fyrirtækið. 

Sjá sýniseintak

Hvernig nýtist lánshæfismat við ákvarðanatöku?

Lánshæfisskýrsla 

Lánshæfisskýrslan er ítarlegasta skýrslan sem hægt er að sækja um fyrirtækið enda samanstendur hún af mörgum skýrslum. Í henni er hægt að sækja lánshæfismat fyrirtækisins, upplýsingar um vanskila- og uppboðsmál, greiðsluhegðun, upplýsingar úr hlutafélagaskrá, lykiltölur úr ársreikningum síðustu fimm ára og fjölmiðlaumfjöllun síðustu 12 mánaða.  

VOG vanskilaskrá 

Hægt er að sjá hvort fyrirtæki sé í vanskilum og hvers eðlis þau vanskil eru. 

Hvenær á að fletta upp í vanskilaskrá og hvenær hentar betur að fletta upp lánshæfismati? 

Upplýsingar úr fyrirtækjaskrá

Undir Upplýsingum úr fyrirtækjaskrá er hægt að sækja Gildandi skráningu fyrirtækis. Þar er hægt að finna upplýsingar um helstu aðstandendur félags, tilgang, skráð hlutafé og hverjir skipa stjórn félagsins.

Sjá sýniseintak

Breytingar úr fyrirtækjaskrá er hægt að sjá með skýrum hætti þar sem hver og ein breyting er dregin upp með myndrænum hætti. Einnig er hægt að kalla eftir stöðu fyrirtækis gagnvart fyrirtækjaskrá á ákveðninni dagsetningu.

Til að sækja Skönnuð skjöl er hægt að smella á „Skjöl frá fyrirtækjaskrá“ og sjá yfirlit yfir þau skjöl sem standa til boða í tímaröð. Hér er hægt að nálgast ýmis skjöl sem tengjast fyrirtækinu líkt og stofngögn, samþykktir, samrunagögn og tilkynningar um breytingar á stjórn, framkvæmdastjórn eða prókúru. Hvert og eitt skjal er hægt að sækja með því að smella á „Sækja“.

Ársreikningar

Hægt er að sækja skönnuð frumrit af ársreikningum og sérstaka samantekt sem inniheldur upplýsingar úr ársreikningum fyrirtækja fimm ár aftur í tímann. Með því að sækja innslegna ársreikninga sex ár aftur í tímann er hægt að sjá myndrænt yfirlit yfir rekstrarsögu fyrirtækis auk þess sem hægt er að sækja tölur úr ársreikningi á Excel sniði til frekari úrvinnslu.

Viljir þú sækja eldri ársreikninga er hægt að sjá yfirlit yfir alla skannaða ársreikninga sem eru fáanlegir hjá Creditinfo með því að smella á „Eldri skannaðir ársreikningar“.

Fjölbreyttar leiðir til að nálgast ársreikningaupplýsingar hjá Creditinfo

Eignarhald og tengsl 

Hjá Creditinfo er hægt að nálgast ítarlegar upplýsingar um eigendur íslenskra fyrirtækja og tengsl þeirra. Strax á viðskiptaspjaldinu er hægt að sjá hversu margir þekktir hluthafar og endanlegir eigendur eru skráðir fyrir félagi.

Hluthafar 

Hér er hægt að sjá yfirlit yfir stærstu hluthafa og hver eignarhluti þeirra er. 

Sjá sýniseintak

Endanlegir eigendur 

Skýrslan um endanlega eigendur gengur skrefinu lengra og rekur hvaða einstaklingar standa að baki félaginu. Hægt er að sjá hver eignarhluti hvers og eins einstaklings er og í gegnum hvaða fyrirtæki eignartengslin eru. Athygli er vakin á því að með því að sækja skýrslu um Endanlega eigendur fæst skýrsla um hluthafa í kaupbæti.

Sjá sýniseintak

Hlutafélagaþátttaka 

Skýrsla um hlutafélagaþátttöku inniheldur upplýsingar um tengsl einstakra aðila við félög sem skráð eru í hlutafélagaskrá. Þar má einnig sjá stöðu aðila hjá félaginu, svo sem hvort viðkomandi er stjórnarformaður, varamaður, framkvæmdastjóri, prókúruhafi, endurskoðandi eða stofnandi. 

Sjá sýniseintak

Tengslaskýrsla 

Skýrslan tekur saman öll þau félög sem fyrirtækið tengist með einum eða öðrum hætti og sýnir hvernig tengslunum er háttað. Einnig er yfirlit yfir hluthafa fyrirtækisins, eign þess í öðrum félögum auk hlutafélagaþáttöku stjórnarmanna og framkvæmdastjóra félagsins. 

Sjá sýniseintak

Upplýsingar um eignarhluti félags í öðrum fyrirtækjum og eignarhlut þess í fasteignum og ökutækjum eru aðgengilegir undir „Eignir“.

Eign í félögum 

Endanlegir eigendur hefur að geyma upplýsingar um þann eða þá aðila sem raunverulega eiga fyrirtækið sem aflað er upplýsinga um og hversu stóran hluta hver og einn eigandi á. Eignarhald er rakið til einstaklinganna sem standa á bak við fyrirtæki sem ekki eru til eigendaupplýsingar fyrir. Endanlegir eigendur geta því auk einstaklinga til dæmis verið ríkissjóður eða lífeyrissjóðir. Innifaldar eru upplýsingar úr hluthafaskrá 

Endanleg eign í félögum 

Endanleg eign í félögum hefur að geyma upplýsingar um endanlega eign í fyrirtækjum tiltekins aðila. Þar birtast upplýsingar um félag sem tiltekinn einstaklingur eða lögaðili á hlut í og jafnframt upplýsingar um öll þau félög sem viðkomandi tengist í gegnum eignarhluti þess félags.  

Sjá sýniseintak

Fjölmiðlaupplýsingar

Hægt er að sjá yfirlit yfir nýjustu fréttir um fyrirtæki á viðskiptaspjaldi og því til viðbótar sést myndrænt yfirlit yfir þróun á tíðni frétta á sl. 12 mánuðum. 

Fjölmiðlavakt Creditinfo vaktar umfjöllun í útvarpi, sjónvarpi, blöðum og netmiðlum og er því verðmætt tól sem heldur þér og þínu starfsfólki upplýstu um fréttir sem skipta ykkur máli.

Hafðu samband ef einhverjar spurningar vakna um Þjónustuvef Creditinfo eða aðrar vörur.

Deila efni:

Fréttabréf Creditinfo

Fáðu nýjustu fréttir af lausnum og þjónustu Creditinfo í tölvupósti
Frábært! Þú ert núna skráð(ur) í fréttabréfið hjá Creditinfo
Úps, eitthvað fór úrskeiðis. Vinsamlegast reynið aftur með því að endurhlaða síðuna