Allir áskrifendur Creditinfo hafa ótakmarkaðan aðgang að Fyrirtækjavaktinni
Fyrirtækjavaktin gerir þér kleift að fylgjast með breytingum sem eiga sér stað á upplýsingum um tiltekin fyrirtæki, t.d. skil á nýjum ársreikningi, breytingar á stjórn félags eða breytingar á eignarhaldi.
Til að virkja Fyrirtækjavaktina velur þú hvaða fyrirtækjum þú vilt fylgjast með inná þjónustuvefnum og færð svo senda tilkynningu í tölvupósti ef breytingar verða hjá vöktuðu félagi. Fyrirtækjavaktin er gjaldfrjáls fyrir áskrifendur Creditinfo.
Fyrirtækjavaktin vaktar allar helstu breytingar sem verða á högum fyrirtækis. Hér eru dæmi um breytingar sem sem Fyrirtækjavaktin vaktar:
Þrjár leiðir eru færar til að bæta kennitölum í vakthólfið:
Leið 1
Hægt er að hlaða inn skrá með lista af kennitölum. Þessi leið er gagnleg ef ætlunin er að vakta mörg fyrirtæki - t.d. alla viðskiptavini. Skráin þarf að vera á .txt, .csv, .xls eða .xlsx sniði. Ef skráin er á .txt eða .csv sniði þurfa kennitölurnar að vera aðskildar með kommu. Ef skráin er á .xls eða .xlsx þurfa kennitölurnar að vera í fyrsta dálk skjalsins.
Leið 2
Slá inn kennitölur handvirkt. Hægt er að slá inn allt að 100 kennitölur í textasvæði undir „Stillingum“ þegar búið er að opna Fyrirtækjavaktina á þjónustuvefnum. Þessi leið er gagnleg ef vakta á nokkur fyrirtæki. Komma þarf að vera á eftir hverri og einni kennitölu ef þær eru fleiri en ein.
Leið 3
Velja stakt fyrirtæki á fyrirtækjaspjaldi. Hægt er að skrá fyrirtæki í vakt þegar þú ert með fyrirtækjaspjaldið opið á þjónustuvefnum. Þá er smellir þú á „Setja í vöktun“ efst í hægra horninu yfir grunnupplýsingum um fyrirtækið. Að því loknu velur þú hvort þú viljir bæta fyrirtækinu við í Fyrirtækjavaktina eða í Viðskiptasafnið.
Hafðu samband ef einhverjar spurningar vakna um Fyrirtækjavaktina eða aðrar vörur Creditinfo.